Hugarheimurinn minn
30.01.2007 21:33:47 / Björg

Bara myndir

Nenni ekki að blogga lengur.........

Ætla frekar að leifa ykkur að njóta ljósmyndahæfileika minna og annara!

http://www.picturetrail.com/bjorghakonardottir

http://www.picturetrail.com/bjorghakonardottirx

Bið að heilsa

Björg


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 08:55:38 / Björg

Borgar sig að vera þrjóskupúki!

Á æfingu í gær var Ásdís að kasta skutlum og þær fóru alltaf upp í ljósið, sem er soldið mikið hátt, eða mér finnst það allavega! Hún og Stebbi voru eitthvað að tala um að ljósið færi að detta bráðum, ég ákvað þá að vera góð og bauð fram hjálp mína við það! En þau sögðu að ég myndi ekki einu sinni geta hitt í ljósið!! Þá var Björg ekki sammála og byrjaði að kasta, það gekk ekkert voðalega vel til að byrja með og þau sögðu mér bara að hætt þessu, fá mér léttari skuttlu eða fara upp á hlaupabrautina! en ég hélt nú ekki og viti þið hvað? eftir svona 300 köst eða eitthvað þá bara hitti ég :D:D og ekki einu sinni heldur tvisvar!! svona til að sýna að þetta hefði ekki bara verið heppni!! ;)

Fékk skóna sem ég pantaði um daginn í gær........vissi eiginlega ekkert hvað ég var að panta, en þetta var bara ljóamndi :P

Vill svo biðja fólk um að kjósa bara einu sinni í skoðanakönnunni, vegna þess að þetta er mjög vísindaleg könnun!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 10:03:33 / Björg

Held það barasta

Laugardagurinn heppnaðist bara ljómandi vel :) allir mættu sem ekki lágu í flensu :P Borðuðum óhóflegt magn af mjög góðum mat og skemmtum okkur bara mjög held ég! :) Annars vill ég bara þakka ykkur öllum enn og aftur fyrir mig!! Þið eruð öll allveg æðislega og ég veit ekki hvar ég væri án ykkar allra!!! :haha:

Verðum að hittast svona öll saman miklu miklu oftar!!.........það koma svo kannski inni myndir bráðum, þar að segja ef þetta dót vill virka einhvertíman hjá mér!

Það eru bara 18 dagar í sól og sælu :D:D:D

Það er kominn inn skoðunakönnun um lýsi og flesnu! 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 08:26:16 / Björg

Sældarlíf.........

Þetta er sældarlíf sem ég lifi í dag :D þarf bara að mæta í einn tíma í skólanum :P

Annars verður svaka teiti hjá mér um helgina! og ef þú ert frjálsíþróttamanneskja í Fjörmanni þá ert þú velkominn!! 8) en ef þú ert frjálsíþróttamanneskja í örðu, þá má athuga hvort þú ert velkominn................

Farinn að njóta þess að þurfa bara að fara í einn tíma ;)

Elska þig


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 13:46:34 / Björg

það er spurning....

Ætli ég sé alveg að missa coolið á þessari síðu :P nei nei ætli það! 

Það var svaka stuð hjá okkur 100m hamingju skvísunum á Laugardaginn ;)og eitthvað svipað því verður gert næsta Laugardag en þá er ég að fara að halda matarboð ársins í tilefni afmælissins míns um daginn ;)

Svo er bara fyrsta úti æfingin á þessu ári á eftri......það verður örugglega brjálað stuð :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 15:35:27 / Björg

.........

Var að koma heim úr mjög svo fallegri en sorglegri athöfn! Hugur minn og styrkur er allur hjá Ásdísi og fjölskyldu hennar!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 11:53:42 / Björg

Einmitt

Ég hef hvorki tíma né nennu í aðs skrifa eitthvað af viti...... 8)

En allir verða að muna hvaða dagur er á morgun....annars bara já :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 13:17:27 / Björg

trallala

Þett er alveg æislegt.....er bara búin að vera í frí í allan dag :D en þar sem ég er frekar rugluð ákvað ég að vakna klukkan 6:45 og drífa mig í sund og taka morgunæfingu, þar sem það er ömurlegt að gera það þegar allir litlu brjálaðingarnir eru komnir í skólasund :P svo þegar ég kom heim var ég svo svöng að ég ákvað að fá mér aðeins að borða áður en ég myndi leggja mig aftur ;) þetta er bara eins og lottó auglýsingin............. en svo byrjaði þessi elskulegi hundur hérna við hliðina að gelt og þegar hann byrjar þá er það lágmarki 30min :$ þannig að ég ákvað að lesa bara smá líffræði þanngað til hann myndi hætta..... svo svaf ég bara fá 9 til að verða 1 og vá hvað þetta var æðislega gott............elska að vera í fríi :D

En við stelpurnar í frjálsum í götunni vorum að gera síðun :P alveg crasy, en það er http://blog.central.is/100mhamingja ......vegna þess að við erum allar svo óendalega hamingjusamar ;)


Hamingjusömu stelpurnar með hamngjusama þjálfaranum sínum :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 21:42:52 / Björg

Það má segja það.......

Að ég sé barasta kominn í helgarfrí :D og það á þriðjudegi, geri aðrir betur! En það eru sem sagt skóhlífadagar í skólanum á morgun og fimmtudaginn og á föstudaginn er bara frí! ég ætla að vera svaka íþróttaskvísa og fara í klifur, skauta og box.... það verður stuð :P

Æfingarnar ganga bara svona líka ljómandi vel þessa dagana!! að ég trúi því bara varla, líður bara næstum eins og í draumi! Svo fer bara að styttast í sólin.....39 dagar :D og svo ég ég líka rétt bráðum afmæli :haha:

Er með svo ótrúlega miklar harðsperrur að ég ætla að skella mér í heitt bað....:D

Elska ykkur


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 16:06:59 / Björg

............

Hef nú ekki mikið merkilegt að segja, svo ég ætla ekkert að vera að því! 8)

Helgin bara búin að vera fín, miklar æfignar og letilíf :)

Ein skemmtilegt vinkonu mynd.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 21:31:39 / Björg

Mér...

Líður eins og langhlaupara og kúluvarpar, eftir æfingu dagsins!:) það er skondin samsetning.....

Annars var Borgó að komast áfram í Gettu betur ;)

Ég er farinn að læra


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 17:17:10 / Björg

ðobukök

Í gær var svaka kökuboð heima hjá Íris Önnu, hún og Stefanía tóku sig til og bökuðu svaka súkkulaðiköku og skinuhorn! :) og auðvitað vorum við Heiðdís fyrstar á staðinn ;) Svo komum Bjarni,Svenni og Ingvar og Bjarni kom færandi hendi með ís úr Vesturbænum, en það er eitthvað sem allar stelpur í Berjarimanum dírka 8) Seinna bættust svo Arndís og Stebbi þjálfari í hópinn, en þau höfðu verði á grafalvarlegum fundi! :P

En þetta kvöld vara bara hin mesta skemmtun og þakka ég bara enn og aftur fyrir mig stelpur!! ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 18:45:07 / Björg

......

Allir sem kepptu á MÍ um helgina stóðu sig alveg ótrúlega vel! og ég er ekkert smá stolt af liðsfélögum mínum í Fjörmani! :D enda eru þau alveg hrikalega duglega að æfa og duglegra fólk er vanfundið ;)

Það eru komnar inn myndir frá þessari mjög svo skemmtilegu helgi, svo mæli ég líka með því að fólk skoði myndirnar sem Maggi tók á sunnudaginn á mótinu; http://frjalsar.com/images.asp - þær eru mjög flottar! :)

Við mæðgurnar með nýjasta fjölskydu meðlimnum... Bebbu og Gunna dóttur :P

Speki dagsins; "þú uppskerð eins og þú sáir"

Björg hamingjusama kveður í bili........


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 11:30:09 / Björg

.......

Ég er reið

og 

Ég á mér draum.................

En við gefumst ekki upp


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 21:00:47 / Björg

Ljóskan hledur áfram.......

það var var nú meira ævintýrið í eðlisfræði í dag :P vorum að gera einhverja "gífurlega" spennandi tilraun. Svo þegar allt fjörið  var búið og við fórum að reikna út fékk ég 16 % skekkju 8| mín var sko ekki sátt, þar sem við höfðum gert allt rétt.... Einar sem var með mér í hóp og kennarinn fóru að pæla í þessu og skoðuð þetta fram og til baka og gátu engann veginn fundið út úr þessu, svo við áttum bara að reyna að útskýra vel afhverju þessi skekkja gæti stafað..... ég leit svo yfir þetta og sá að ég hafði bara verið að nota bandvitlausa tölu......  :$:P og þeir voru svo mikilr prófesorar að þeir sáu það ekki.....hihi :haha:

Í dag var kynntur nýr aðstoðar þjálfari á æfingu.....mér lýst bara mjög vel á hann og held að hann geti hjálpað okkur öllum mjög mikið!! :D

Á morgun og sunnudaginn er svo MÍ aðalhluti....það  verður svaka stuð og hrikaleg keppni í morgum greinum 8) en þar sem ég er svona frekar óheppinn manneskja keppi ég ekki..........en hey ekki örvænta, Björg snýr aftur........ :!:

Farinn að láta þvo bílinn....er nú þegar búin að hljóta varanlegan skaða og svo er það kósý video með stelpunum í frjálsum :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8